{"id":30,"date":"2013-02-18T16:33:01","date_gmt":"2013-02-18T16:33:01","guid":{"rendered":"http:\/\/bull.bokasafndagsbrunar.is\/?page_id=30"},"modified":"2026-06-09T14:36:22","modified_gmt":"2026-06-09T14:36:22","slug":"dagsbrunarfyrirlestrar","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/?page_id=30","title":{"rendered":"Dagsbr\u00fanarfyrirlestrar"},"content":{"rendered":"<p><\/p>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\n<p><strong>Dagsbr\u00fanarfyrirlestrar<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 \u00e1runum 2003-2022 voru svokalla\u00f0ir Dagsbr\u00fanarfyrirlestrar haldnir \u00e1 vegum B\u00f3kasafns Dagsbr\u00fanar. H\u00e9r \u00e1 eftir er yfirlit yfir alla Dagsbr\u00fanarfyrirlestra og efni \u00feeirra, sem tengist \u00e1vallt verkal\u00fd\u00f0shreyfingunni.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">17. febr\u00faar 2022<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\n<h3>Sta\u00f0a innflytjenda \u00e1 \u00cdslandi: fj\u00e1rhagur, h\u00fasn\u00e6\u00f0i og heilsa<\/h3>\n<p>Fimmtudaginn 17. febr\u00faar 2022 h\u00e9lt\u00a0Krist\u00edn Heba G\u00edslad\u00f3ttir framkv\u00e6mdastj\u00f3ri\u00a0<a href=\"https:\/\/www.rannvinn.is\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\" data-saferedirecturl=\"https:\/\/www.google.com\/url?q=https:\/\/www.rannvinn.is\/&amp;source=gmail&amp;ust=1645092961483000&amp;usg=AOvVaw0dlqKrPrIJ7BF9kcBYMj7x\">V\u00f6r\u00f0u \u2013 ranns\u00f3knastofnunar vinnumarka\u00f0arins<\/a>\u00a0fyrirlestur um fj\u00e1rhagsst\u00f6\u00f0u innflytjenda \u00e1 \u00cdslandi st\u00f6\u00f0u \u00e1 h\u00fasn\u00e6\u00f0ismarka\u00f0i og heilsu sem byggir \u00e1 n\u00fdlegri k\u00f6nnuna \u00e1 st\u00f6\u00f0u launaf\u00f3lks me\u00f0al f\u00e9laga \u00ed a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6gum AS\u00cd og BSRB sem birtist \u00ed sk\u00fdrslunni:\u00a0\u00a0<a href=\"https:\/\/www.rannvinn.is\/_files\/ugd\/61b738_a832231abeed492cb01753df50838ab0.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\" data-saferedirecturl=\"https:\/\/www.google.com\/url?q=https:\/\/www.rannvinn.is\/_files\/ugd\/61b738_a832231abeed492cb01753df50838ab0.pdf&amp;source=gmail&amp;ust=1645092961483000&amp;usg=AOvVaw0e6sEbHlYVtWSaldOhID1x\">Sta\u00f0a launaf\u00f3lks \u00e1 \u00cdslandi. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur spurningak\u00f6nnunar me\u00f0al f\u00e9laga \u00ed a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6gum AS\u00cd og BSRB.<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">10. mars 2020.<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><strong>Mar\u00edanna Traustad\u00f3ttir<\/strong>, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 AS\u00cd \u00ed jafnr\u00e9ttis og umhverfism\u00e1lum.<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\u201eVerkal\u00fd\u00f0shreyfingin, al\u00fej\u00f3\u00f0asamsta\u00f0a, r\u00e9ttindi launaf\u00f3lks og jafnr\u00e9tti kynjanna.\u201c (Var fresta\u00f0 og a\u00f0 lokum felldur ni\u00f0ur vegna \u00e1standsins \u00ed samf\u00e9laginu)<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\u00datdr\u00e1ttur: \u201e\u00c1 t\u00edmum \u00ferenginga er al\u00fej\u00f3\u00f0leg samsta\u00f0a launaf\u00f3lks mikilv\u00e6g. Hlutverk Al\u00fej\u00f3\u00f0avinnum\u00e1lastofnunarinnar \u2013 ILO\u00a0 og \u00e1herslur hennar skipta m\u00e1li og hafa \u00e1hrif \u00e1 m\u00f3tun framt\u00ed\u00f0ar \u00e1 vinnumarka\u00f0i. ILO er eina al\u00fej\u00f3\u00f0astofnun Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna sem l\u00fdtur ekki a\u00f0eins stj\u00f3rn r\u00edkisstj\u00f3rnanna heldur einnig launaf\u00f3lks og atvinnurekenda og minnir \u00fev\u00ed s\u00edfellt \u00e1 r\u00e9tt verkaf\u00f3lks sem og almenn mannr\u00e9ttindi. Hvernig endurspeglast jafnr\u00e9tti\u00e1herslur ILO \u00e1 \u00edslenskum vinnumarka\u00f0? Hva\u00f0 getur \u00cdsland lagt til \u00ed bar\u00e1ttuna um jafnr\u00e9tti fyrir alla?<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\n<p>ILO hefur lagt s\u00e9rstaka \u00e1herslu \u00e1 sanngj\u00f6rn umskipti, \u201ejust transition\u201c \u00ed kj\u00f6lfar loftlagsbreytinga og \u00e1hrif \u00feeirra \u00e1 vinnumarka\u00f0inn. \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera \u00e1 \u00e1byrg\u00f0 \u00edslenskrar verkal\u00fd\u00f0shreyfingar a\u00f0 trygg\u00f0 ver\u00f0i sanngj\u00f6rn umskipti \u00ed \u00fe\u00e1gu jafnr\u00e9ttis.<\/p>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">7. mars 2019<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><strong>Svanur Kristj\u00e1nsson<\/strong>, stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\u201eR\u00f3tt\u00e6k og \u00f6flug verkal\u00fd\u00f0shreyfing e\u00f0a g\u00f6nuhlaup n\u00fdrrar forystu?\u201c<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">Fr\u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0ars\u00e1tt 1990 r\u00edkti umtalsver\u00f0 s\u00e1tt um starfsemi \u00edslenskra verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9laga. S\u00fa s\u00e1tt er n\u00fana \u00ed <span style=\"font-weight: 300;\">uppn\u00e1mi. \u00c1 opinberum vettvangi eru sag\u00f0ar tv\u00e6r s\u00f6gur:<\/span><\/div>\n<div><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\n<ol>\n<li>\u00cdslenskt verkaf\u00f3lk er a\u00f0 r\u00edsa upp og kasta af s\u00e9r hlekkjum l\u00e1gra launa, forstj\u00f3ravalds og fjandsamlegs r\u00edkisvalds sem fyrst og s\u00ed\u00f0ast g\u00e6tir hagsmuna \u00feeirra r\u00edku og voldugu. N\u00fd forysta mun lei\u00f0a s\u00f3kn \u00edslensks verkal\u00fd\u00f0s til n\u00fds \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags \u00fear sem hagur vinnandi f\u00f3lks, kvenna sem karla, er \u00ed \u00f6ndvegi. Verkf\u00f6ll \u00fej\u00f3na tvi\u00fe\u00e6ttum tilgangi: Kn\u00fdja atvinnurekendur til a\u00f0 ganga a\u00f0 sanngj\u00f6rnum kr\u00f6fum verkaf\u00f3lks og eru vinnandi f\u00f3lki til valdeflingar og bar\u00e1ttugle\u00f0i. R\u00f3tt\u00e6k og \u00f6flug verkal\u00fd\u00f0shreyfing ver\u00f0ur a\u00f0 veruleika.<\/li>\n<li>L\u00edfskj\u00f6r \u00e1 \u00cdslandi eru almennt mj\u00f6g g\u00f3\u00f0. Verkal\u00fd\u00f0sbar\u00e1tta er hins vegar \u00e1tumein \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu; skapar sundrungu \u00ed sta\u00f0 samheldni. \u201cVinnuveitendur\u201d eru drifkraftur hagvaxtar; kaup og kj\u00f6r \u201claun\u00feega\u201d \u00e6tti a\u00f0 mi\u00f0ast vi\u00f0 grei\u00f0slugetu atvinnuveganna. Verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9l\u00f6g eiga ekki hafa nein afskipti af stj\u00f3rnm\u00e1lum e\u00f0a \u00fej\u00f3\u00f0m\u00e1lum yfirleitt. N\u00fdtt forystuf\u00f3lk verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9laganna eru ofst\u00e6kisfullir grillufangarar fastir \u00ed \u00fareltum hugmyndum um st\u00e9ttabar\u00e1ttu og s\u00f3s\u00edalisma sem \u00e6t\u00ed\u00f0 lei\u00f0a til f\u00e1t\u00e6ktar og \u00f6rbirg\u00f0ar. Verkf\u00f6ll eru \u00farelt bar\u00e1ttut\u00e6ki. G\u00f6nuhlaup n\u00fdrrar verkal\u00fd\u00f0sforystu mun lei\u00f0a h\u00f6rmungar yfir \u00edslenskt verkaf\u00f3lk og \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 allt.\u00cd fyrirlestrinum var ger\u00f0 grein fyrir s\u00f6gulegum uppruna fr\u00e1sagnanna tveggja. Teki\u00f0 skal fram a\u00f0\u00a0fyrirlesari er ekki a\u00f0d\u00e1andi \u00feeirrar s\u00f6gusko\u00f0unar a\u00f0 sannleikurinn s\u00e9 \u00e6t\u00ed\u00f0 afst\u00e6\u00f0ur. \u00dev\u00ed ver\u00f0ur reynt a\u00f0 meta fr\u00e6\u00f0ilega st\u00f6\u00f0u og framt\u00ed\u00f0arhorfur \u00edslenskrar verkal\u00fd\u00f0shreyfingar \u00e1 umbrotat\u00edmum.<\/li>\n<\/ol>\n<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\u00cd tengslum vi\u00f0 fyrirlesturinn f\u00e9kk Svanur 4. ma\u00ed 2017 birta <a href=\"https:\/\/kjarninn.is\/skodun\/2019-03-04-rottaek-og-oflug-verkalydshreyfing-eda-gonuhlaup-nyrrar-forystu\/\">grein \u00ed Kjarnanum<\/a> me\u00f0 sama heiti og fyrirlesturinn.<\/div>\n<div><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">Dagsbr\u00fanarfyrirlesturinn 2018<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><strong>Uppl\u00fdsingar vantar<\/strong><\/div>\n<div><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">Dagsbr\u00fanarfyrirlesturinn 2017<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><strong>Uppl\u00fdsingar vantar<\/strong><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">26. jan\u00faar 2016<br \/>\n<strong>Gu\u00f0j\u00f3n Fri\u00f0riksson,\u00a0<\/strong>sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>\u201eVort daglegt brau\u00f0\u201c : Al\u00fe\u00fd\u00f0ubrau\u00f0ger\u00f0in \u00ed Reykjav\u00edk<\/em><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\u00cd tilefni af 60 \u00e1ra afm\u00e6li B\u00f3kasafns Dagsbr\u00fanar \u00feann 26. jan\u00faar 2016 var hinn \u00e1rlegi Dagsbr\u00fanarfyrirlestur haldinn. \u00cd \u00feetta skipti\u00f0 fjalla\u00f0i Gu\u00f0j\u00f3n Fri\u00f0riksson, sagnfr\u00e6\u00f0ingur um merka fyrirt\u00e6ki\u00f0, Al\u00fe\u00fd\u00f0ubrau\u00f0ger\u00f0ina \u00ed Reykjav\u00edk sem stofna\u00f0 var af verkam\u00f6nnum og sj\u00f3m\u00f6nnum \u00ed Reykjav\u00edk \u00e1ri\u00f0 1917 til a\u00f0 l\u00e6kka ver\u00f0 \u00e1 brau\u00f0i og reki\u00f0 af al\u00fe\u00fd\u00f0uhreyfingunni allt til \u00e1rsins 1977. Um langan t\u00edma var Al\u00fe\u00fd\u00f0ubrau\u00f0ger\u00f0in st\u00e6rsta og \u00f6flugasta brau\u00f0ger\u00f0arh\u00fas h\u00f6fu\u00f0sta\u00f0arins og einn helsti fj\u00e1rhagslegi bakhjarl Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins og Al\u00fe\u00fd\u00f0usambandsins og stofnana \u00feeim tengdum, svo sem Al\u00fe\u00fd\u00f0ubla\u00f0sins. Al\u00fe\u00fd\u00f0ubrau\u00f0ger\u00f0ir voru l\u00edka reknar \u00ed Hafnarfir\u00f0i, \u00e1 Akranesi og \u00ed Keflav\u00edk.Gu\u00f0j\u00f3n Fri\u00f0riksson er me\u00f0al \u00feekktustu sagnfr\u00e6\u00f0inga landsins. Hann hefur starfa\u00f0 sem rith\u00f6fundur og sagnfr\u00e6\u00f0ingur s\u00ed\u00f0an 1980 og gefi\u00f0 \u00fat fj\u00f6lda b\u00f3ka, m.a. um s\u00f6gu Reykjav\u00edkur, \u00e6vis\u00f6gur J\u00f3nasar fr\u00e1 Hriflu, Einars Benediktssonar, J\u00f3ns Sigur\u00f0ssonar forseta og Hannesar Hafstein, um forsetat\u00ed\u00f0 \u00d3lafs Ragnars Gr\u00edmssonar og s\u00f6gu Kaupmannahafnar sem h\u00f6fu\u00f0borgar \u00cdslands.<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\"><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">12. n\u00f3vember 2014<br \/>\n<b>Sumarli\u00f0i R. \u00cdsleifsson<\/b>, sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Saga Al\u00fe\u00fd\u00f0usambands \u00cdslands<\/em><\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">Sumarli\u00f0i fjalla\u00f0i um tilgang \u00feess a\u00f0 skrifa s\u00f6gu verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar og l\u00fdsti \u00fev\u00ed hvernig verki\u00f0 Saga Al\u00fe\u00fd\u00f0usambands \u00cdslands er byggt upp. Hann fjalla\u00f0i um nokkur helstu \u00feemu sem birtast \u00ed verkinu, helstu vi\u00f0fangsefni verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar og hvernig henni vegna\u00f0i \u00ed bar\u00e1ttu sinni. \u00de\u00e1 r\u00e6ddi hann um skipulag hennar, hvernig til t\u00f3kst vi\u00f0 uppbyggingu hreyfingarinnar og einnig um s\u00e9rkenni hreyfingarinnar samanbori\u00f0 vi\u00f0 n\u00e1grannal\u00f6ndin. Sumarli\u00f0i hefur sinnt ranns\u00f3knum \u00e1 \u00edmyndum \u00cdslands, en auk \u00feess hefur hann fjalla\u00f0 um s\u00f6gu atvinnul\u00edfs, stj\u00f3rnm\u00e1la og verkal\u00fd\u00f0shreyfingar \u00e1 20. \u00f6ld. Hann skrifa\u00f0i s\u00f6gu Al\u00fe\u00fd\u00f0usam\u00adbands \u00cdslands sem kom \u00fat \u00ed tveimur bindum \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri. \u00cd vor sem lei\u00f0 lauk hann doktorspr\u00f3fi \u00ed sagnfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands.<\/div>\n<div style=\"text-align: justify; padding-left: 40px;\">\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>21. n\u00f3vember 2013<br \/>\n<strong>Gu\u00f0n\u00fd Hallgr\u00edmsd\u00f3ttir,<\/strong>\u00a0sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Sagan af Gu\u00f0r\u00fanu Ketilsd\u00f3ttur: eins\u00f6guranns\u00f3kn \u00e1 \u00e6vi 18. aldar vinnukonu.<\/em><\/p>\n<p>Gu\u00f0n\u00fd fjalla\u00f0i um n\u00fd\u00fatkomna b\u00f3k s\u00edna,\u00a0<em>Sagan af Gu\u00f0r\u00fanu Ketilsd\u00f3ttur:\u00a0eins\u00f6guranns\u00f3kn \u00e1 \u00e6vi 18. aldar vinnukonu<\/em>,\u00a0en sagan sem \u00fear er s\u00f6g\u00f0 byggist me\u00f0al annars \u00e1 sj\u00e1lfs\u00e6vis\u00f6gubroti sem var\u00f0veist hefur og ber titilinn\u00a0<em>\u00c6visaga Gu\u00f0r\u00fanar Ketilsd\u00f3ttur.\u00a0<\/em>Gu\u00f0r\u00fan f\u00e6ddist \u00e1ri\u00f0 1759 og er saga hennar l\u00edklega elsta var\u00f0veitta sj\u00e1lfs\u00e6visaga \u00edslenskrar al\u00fe\u00fd\u00f0ukonu \u2013 vinnukonu fr\u00e1 18. \u00f6ld. \u00a0\u00cd b\u00f3kinni er fjalla\u00f0 um l\u00edf \u00feessar merkilegu al\u00fe\u00fd\u00f0ukonu og hvernig h\u00fan n\u00e1\u00f0i, \u00fer\u00e1tt fyrir afar \u00fer\u00f6nga st\u00e9ttarst\u00f6\u00f0u s\u00edna, a\u00f0 hasla s\u00e9r v\u00f6ll \u00ed erfi\u00f0u \u00e1rfer\u00f0i m\u00f3\u00f0urhar\u00f0indanna. \u00a0D\u00f6pur endalok \u00e6vi hennar draga fram hi\u00f0 harms\u00f6gulega \u00ed l\u00edfi \u00fe\u00fasunda \u00cdslendinga \u00e1 \u00feessum t\u00edma.\u00a0\u00dear sem l\u00edti\u00f0 er til af heimildum um al\u00fe\u00fd\u00f0ukonur fr\u00e1 18. og 19. \u00f6ld \u00fe\u00e1 er \u00feessi saga mj\u00f6g \u00fearft innlegg \u00ed umr\u00e6\u00f0ur um konur fyrr \u00e1 t\u00edmum.<\/p>\n<p>8. n\u00f3vember 2012<br \/>\n<strong>\u00deorleifur Fri\u00f0riksson,\u00a0<\/strong>sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Dagar vinnu og vona: Saga Verkamannaf\u00e9lagsins Dagsbr\u00fanar \u00ed kreppu og k\u00f6ldu str\u00ed\u00f0i.<\/em><\/p>\n<p>\u00deorleifur fjalla\u00f0i um verki\u00f0 sem er sj\u00e1lfst\u00e6tt framhald af b\u00f3kinni\u00a0<em>Vi\u00f0 br\u00fan n\u00fds dags<\/em>\u00a0sem kom \u00fat \u00e1ri\u00f0 2007, og l\u00edkt og \u00fear eru h\u00e9r feta\u00f0ar n\u00fdjar brautir \u00ed \u00edslenskri samt\u00edmas\u00f6gu, hvorki hef\u00f0bundin f\u00e9lagssaga n\u00e9 str\u00edpu\u00f0 fr\u00e6\u00f0ileg greining. H\u00fan er enn s\u00ed\u00f0ur saga af hetjum og f\u00f3rnarl\u00f6mbum.\u00a0Verkamannaf\u00e9lagi\u00f0 Dagsbr\u00fan er lei\u00f0arhno\u00f0a um samf\u00e9lag al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lks.\u00a0Me\u00f0 a\u00f0sto\u00f0 f\u00e9lagsins fetum vi\u00f0 okkur um umhverfi og hugmyndaheim samf\u00e9lags sem einu sinni var og d\u00fdpkum jafnframt skilning okkar \u00e1 \u00fev\u00ed sem er.\u00a0Verki\u00f0 er tilraun til \u00feess a\u00f0 sko\u00f0a vi\u00f0fang allrar sagnfr\u00e6\u00f0i, manneskjuna sj\u00e1lfa, \u00ed umhverfi sem byggt er \u00e1 hlutl\u00e6gri sagnfr\u00e6\u00f0ilegri ranns\u00f3kn.<\/p>\n<p>8. desember 2011<br \/>\n<strong>Sigur\u00f0ur P\u00e9tursson,\u00a0<\/strong>sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Saga verkal\u00fd\u00f0shreyfingar \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um 1890-1930<\/em><\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur fjalla\u00f0i um\u00a0\u00fe\u00e1 umbyltingu vi\u00f0horfa og a\u00f0st\u00e6\u00f0na sem fylgdu \u00ed kj\u00f6lfar n\u00fdrra \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsa\u00f0st\u00e6\u00f0na um aldam\u00f3tin 1900.\u00a0Myndun verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9laga og p\u00f3lit\u00edska forystu jafna\u00f0armanna \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i leiddi til fyrsta rau\u00f0a meirihlutans \u00ed b\u00e6jarstj\u00f3rn \u00e1 \u00cdslandi \u00e1ri\u00f0 1921.\u00a0Hann fjalla\u00f0i einnig um uppbyggingu verkal\u00fd\u00f0shreyfingar, p\u00f3lit\u00edsk \u00e1t\u00f6k og sterka st\u00f6\u00f0u jafna\u00f0armanna \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um. Fyrirlestur Sigur\u00f0ar bygg\u00f0ist\u00a0\u00e1 \u00fe\u00e1 n\u00fd\u00fatkominni b\u00f3k sem nefnist\u00a0<em>Vindur \u00ed seglum<\/em>\u00a0og er fyrsta bindi s\u00f6gu verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar \u00e1 Vestfj\u00f6r\u00f0um.<\/p>\n<p>11. n\u00f3vember 2010<br \/>\n<strong>Ragnhei\u00f0ur Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir,<\/strong>\u00a0sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Fullgildir borgarar? Um n\u00fdtt f\u00f3lk \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1laumr\u00e6\u00f0unni fram a\u00f0 l\u00fd\u00f0veldisstofnun.<\/em><\/p>\n<p>Fyrirlestur Ragnhei\u00f0ar bygg\u00f0ist \u00e1 b\u00f3k hennar og doktorsritger\u00f0,\u00a0<em>N\u00fdtt f\u00f3lk: \u00dej\u00f3\u00f0erni og \u00edslensk verkal\u00fd\u00f0sstj\u00f3rnm\u00e1l 1901-1944.\u00a0<\/em>Eitt helsta verkefni al\u00fej\u00f3\u00f0legrar verkal\u00fd\u00f0shreyfingar var a\u00f0 berjast fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 skj\u00f3lst\u00e6\u00f0ingar hennar teldust fullgildir borgarar. \u00cd fyrirlestrinum ver\u00f0a f\u00e6r\u00f0 r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi hafi \u00feessi \u00fe\u00e1ttur verkal\u00fd\u00f0sbar\u00e1ttunnar ekki s\u00edst falist \u00ed tilraunum til a\u00f0 endurm\u00f3ta \u00edslenska \u00fej\u00f3\u00f0ernisstefnu. S\u00fdnt ver\u00f0ur fram \u00e1 a\u00f0 verkal\u00fd\u00f0shreyfingin hafi allt fr\u00e1 upphafi r\u00e1\u00f0ist gegn \u00feeim \u00fe\u00e1ttum hennar sem samr\u00fdmdust illa s\u00f3s\u00edal\u00edskri stj\u00f3rnm\u00e1laor\u00f0r\u00e6\u00f0u, reynt a\u00f0 endursegja \u00fej\u00f3\u00f0ars\u00f6guna, skilgreina upp \u00e1 n\u00fdtt og \u00e1 s\u00ednum forsendum grunn\u00fe\u00e6tti \u00edslenskrar \u00fej\u00f3\u00f0ernissj\u00e1lfsmyndar. Jafnframt ver\u00f0a borin saman \u00e1hrif \u00fej\u00f3\u00f0ernisstefnu \u00e1 stj\u00f3rnm\u00e1laarma verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar, Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkinn annars vegar og Komm\u00fanistaflokkinn (og s\u00ed\u00f0ar S\u00f3s\u00edalistaflokkinn) hins vegar.<\/p>\n<p>15. ma\u00ed 2009<br \/>\n<strong>M\u00e1l\u00feing:\u00a0\u201eH\u00e9\u00f0inn og h\u00fasaskj\u00f3li\u00f0\u201c<\/strong><\/p>\n<p>18. ma\u00ed 2009 voru 80 \u00e1r li\u00f0in s\u00ed\u00f0an frumvarp um verkamannab\u00fasta\u00f0i var sam\u00feykkt \u00e1 Al\u00feingi, en forma\u00f0ur Dagsbr\u00fanar, H\u00e9\u00f0inn Valdimarsson, var flutningsma\u00f0ur frumvarpsins. \u00c1 m\u00e1l\u00feinginu voru 6 fyrirlesarar og pallbor\u00f0sumr\u00e6\u00f0a. Titlar fyrirlestrannar voru Verkal\u00fd\u00f0shreyfingin og h\u00fasn\u00e6\u00f0ism\u00e1lin (Gylfi Arnbj\u00f6rnsson, forseti AS\u00cd); Fr\u00e1 Verk\u00f3 til vi\u00f0b\u00f3tarl\u00e1na \u2013 Tilur\u00f0 og \u00fer\u00f3un f\u00e9lagslega h\u00fasn\u00e6\u00f0iskerfisins (J\u00f3n R\u00fanar Sveinsson, f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingur, Reykjav\u00edkurAkadem\u00edunni); Upphaf og \u00fer\u00f3un verkamannab\u00fasta\u00f0anna \u2013 S\u00f6gulegt yfirlit (Sigur\u00f0ur E. Gu\u00f0mundsson, sagnfr\u00e6\u00f0ingur og fyrrverandi framkv\u00e6mdastj\u00f3ri H\u00fasn\u00e6\u00f0isstofnunar r\u00edkisins); St\u00f3rir draumar um \u00edb\u00fa\u00f0 al\u00fe\u00fd\u00f0umannsins \u2013 \u00fe\u00e1ttur f\u00e9lagslegra \u00edb\u00fa\u00f0abygginga \u00ed \u00edslenskri h\u00fasager\u00f0ars\u00f6gu \u00e1 20. \u00f6ld (P\u00e9tur H. \u00c1rmannsson, arkitekt); Uppbygging og \u00fer\u00f3un h\u00fasn\u00e6\u00f0isa\u00f0sto\u00f0ar \u00ed Reykjav\u00edk s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r (J\u00f3runn \u00d3sk Fr\u00edmannsd\u00f3ttir, forma\u00f0ur Velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0s Reykjav\u00edkurborgar); Hlutverk \u00cdb\u00fa\u00f0al\u00e1nasj\u00f3\u00f0s (Gu\u00f0mundur Bjarnason, framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00cdb\u00fa\u00f0al\u00e1nasj\u00f3\u00f0s).<\/p>\n<p>30. apr\u00edl 2008<br \/>\n<strong>\u00deorgr\u00edmur Gestsson,\u00a0<\/strong>bla\u00f0ama\u00f0ur og rith\u00f6fundur<br \/>\n<em>\u00d6ryggissj\u00f3\u00f0ur verkal\u00fd\u00f0sins &#8211; sagnfr\u00e6\u00f0i e\u00f0a ranns\u00f3knarbla\u00f0amennska<\/em><\/p>\n<p>\u00deorgr\u00edmur fjalla\u00f0i m.a.\u00a0um sagnfr\u00e6\u00f0ileg vinnubr\u00f6g\u00f0 og mismunandi a\u00f0fer\u00f0ir\u00a0bla\u00f0amanns annars vegar og sagnfr\u00e6\u00f0ings hinsvegar \u00feegar skrifa\u00f0 er um s\u00f6gu og \u00fe\u00e1 s\u00f6gu verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar og s\u00e9rstaklega samband atvinnuleysistryggingasj\u00f3\u00f0s og verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar og hvernig \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 atvinnuleysisb\u00f3tum hefur f\u00e6rst til sveitarf\u00e9laganna.<\/p>\n<p><b>H\u00f6r\u00f0ur Z\u00f3phon\u00edasson,<\/b>\u00a0sk\u00f3lastj\u00f3ri<br \/>\n<em>Aldarsaga Hl\u00edfar<\/em><\/p>\n<p>H\u00f6r\u00f0ur h\u00e9lt erindi um \u00fe\u00e1 n\u00fd\u00fatkomna b\u00f3k s\u00edna og \u00d3lafs Kristj\u00e1nssonar,\u00a0<em>Verkamannaf\u00e9lagi\u00f0 Hl\u00edf 100 \u00e1ra\u00a0<\/em>(Hafnarfj\u00f6r\u00f0ur 2007).<\/p>\n<p>29. september 2007<br \/>\n<strong>\u00deorleifur Fri\u00f0riksson,\u00a0<\/strong>sagnfr\u00e6\u00f0ingur<br \/>\n<em>Um og fyrir: A\u00f0 skrifa s\u00f6gu um fort\u00ed\u00f0 fyrir samt\u00ed\u00f0.<\/em><\/p>\n<p>\u00deorleifur fjalla\u00f0i um tilur\u00f0 ritsins\u00a0<em>Vi\u00f0 br\u00fan n\u00fds dags: Saga Verkamannaf\u00e9lagsins Dagsbr\u00fanar 1906\u20131930,<\/em>\u00a0efnist\u00f6k og bar\u00e1ttu vi\u00f0 heimildir.<\/p>\n<p>23. september 2006<br \/>\n<strong>R\u00e1\u00f0stefna \u00ed tilefni 100 \u00e1ra afm\u00e6lis Verkamannaf\u00e9lagsins Dagsbr\u00fanar<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 r\u00e1\u00f0stefnunni voru 7 fyrirlestrar og pallbor\u00f0sumr\u00e6\u00f0a. Fyrirlestrarnir eru birtir \u00ed b\u00f3kinni\u00a0<em>Samf\u00e9lagsleg \u00e1hrif verkal\u00fd\u00f0shreyfingarinnar \u00e1 20. \u00f6ld: framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn \u00e1 21. \u00f6ldinni<\/em>\u00a0(ritstj\u00f3rar Sumarli\u00f0i R. \u00cdsleifsson og \u00de\u00f3runn Sigur\u00f0ard\u00f3ttir), sem kom \u00fat \u00e1 vegum Eflingar og Reykjav\u00edkurAkadem\u00edunnar \u00e1ri\u00f0 2007.<\/p>\n<p>19. n\u00f3vember 2005<br \/>\n<strong>Ingibj\u00f6rg S\u00f3lr\u00fan G\u00edslad\u00f3ttir,\u00a0<\/strong>forma\u00f0ur Samfylkingarinnar<br \/>\n<em>\u00cdslenskt launaf\u00f3lk \u00e1 t\u00edmum al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00e6\u00f0ingar<\/em><\/p>\n<p>Ingibj\u00f6rg fjalla\u00f0i um hnattv\u00e6\u00f0inguna og \u00fer\u00f3un hennar og um efnahagslegt og p\u00f3lit\u00edskt\u00a0vald al\u00fej\u00f3\u00f0legra vi\u00f0skiptablokka \u00e1 t\u00edmum hnattv\u00e6\u00f0ingar og \u00e1hrif \u00feeirra \u00e1 stefnum\u00f3tun og umr\u00e6\u00f0u \u00e1 vettvangi stj\u00f3rnm\u00e1lanna. H\u00fan r\u00e6ddi um\u00a0n\u00fdfrj\u00e1lshyggjuna sem afsprengi vi\u00f0skiptalegra hagsmuna st\u00f3rfyrirt\u00e6kjanna og hvernig h\u00fan hefur vegi\u00f0 a\u00f0 j\u00f6fnu\u00f0i og jafnr\u00e9tti milli \u00fej\u00f3\u00f0a og innan \u00fej\u00f3\u00f0a. Einnig fjalla\u00f0i h\u00fan um\u00a0hvernig h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 \u00feessari \u00fer\u00f3un og n\u00fdta hnattv\u00e6\u00f0inguna \u00ed \u00fe\u00e1gu launaf\u00f3lks og \u00feeirra sem eiga undir h\u00f6gg a\u00f0 s\u00e6kja \u00ed heiminum \u00ed dag.<\/p>\n<p>27. n\u00f3vember 2004<br \/>\n<strong>Gylfi Arinbj\u00f6rnsson,\u00a0<\/strong>framkv\u00e6mdastj\u00f3ri AS\u00cd<br \/>\n<em>Si\u00f0fer\u00f0i og samf\u00e9lagsleg \u00e1byrg\u00f0 fyrirt\u00e6kja<\/em><\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt fr\u00e9tt \u00ed Morgunbla\u00f0inu sag\u00f0i Gylfi: \u201eskilgreina \u00fearf betur samf\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0 fyrirt\u00e6kja, jafnt f\u00e9lagslega, efnahagslega og umhverfislega\u201c og \u201el\u00edta \u00feurfi til hlutverks velfer\u00f0arkerfisins gagnvart \u00feeim einstaklingum sem fara halloka \u00ed hagr\u00e6\u00f0ingara\u00f0ger\u00f0um.&#8220;<\/p>\n<p>27. n\u00f3vember 2003<br \/>\n<strong>\u00d3lafur Ragnar Gr\u00edmsson,\u00a0<\/strong>forseti \u00cdslands<\/p>\n<p>\u00c1varp vi\u00f0 afhendingu s\u00f6gufr\u00e6gs b\u00f3kasafns Verkal\u00fd\u00f0sf\u00e9lagsins Dagsbr\u00fanar Reykjav\u00edkurAkadem\u00edunni til var\u00f0veislu og afnota.<br \/>\nHeildartexta \u00e1varpsins m\u00e1 finna\u00a0<a href=\"https:\/\/olafur.forseti.is\/media\/files\/03.11.27.Rvikakademian.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">h\u00e9r.<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><em>\u200b<\/em><\/p>\n<\/div>\n<p><\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dagsbr\u00fanarfyrirlestrar \u00c1 \u00e1runum 2003-2022 voru svokalla\u00f0ir Dagsbr\u00fanarfyrirlestrar haldnir \u00e1 vegum B\u00f3kasafns Dagsbr\u00fanar. H\u00e9r \u00e1 eftir er yfirlit yfir alla Dagsbr\u00fanarfyrirlestra og efni \u00feeirra, sem tengist \u00e1vallt verkal\u00fd\u00f0shreyfingunni. 17. febr\u00faar 2022 Sta\u00f0a innflytjenda \u00e1 \u00cdslandi: fj\u00e1rhagur, h\u00fasn\u00e6\u00f0i og heilsa Fimmtudaginn 17. febr\u00faar 2022 h\u00e9lt\u00a0Krist\u00edn Heba G\u00edslad\u00f3ttir framkv\u00e6mdastj\u00f3ri\u00a0V\u00f6r\u00f0u \u2013 ranns\u00f3knastofnunar vinnumarka\u00f0arins\u00a0fyrirlestur um &hellip; <span class=\"continue-reading\"><a href=\"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/?page_id=30\">Continue reading <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":7,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-30","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/30","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/7"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=30"}],"version-history":[{"count":36,"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/30\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":801,"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/pages\/30\/revisions\/801"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/bokasafndagsbrunar.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=30"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}