Bókasafn Dagsbrúnar er sérfræðisafn á sviði atvinnulífsrannsókna og verkalýðsmála. Safnið er einnig fræðibókasafn í hug-, hag- og félagsvísindum og handbókasafn fyrir ReykjavíkurAkademíuna.
Safnið er opið almenningi sem getur skoðað bækur, tímarit og annað safnefni á staðnum en útlán eru einungis afgreidd sem innanhússlán til félaga ReykjavíkurAkademíunnar sem hafa skrifstofu á staðnum. Á safninu eru skrifborð sem gestir safnsins geta nýtt við notkun safnkosts og er þráðlaust Internet í boði. Einnig er hægt að fá efni ljósritað gegn vægu gjaldi. Þeir sem vinna að rannsóknum geta fengið að nýta vinnuaðstöðuna utan auglýsts opnunartíma.
Umsjónarmaður safnsins er Ingibjörg Hjartardóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur sem veitir upplýsingar um safnkost safnsins..
Eigandi safnsins er Efling – stéttarfélag en ReykjavíkurAkademían er rekstraraðili þess.
Þórunnartúni 2, 1. hæð
105 Reykjavík
Opnunartími:
Safnið er lokað vegna viðgerða.
Netfang: