Opinn aðgangur

Bókasafn Dagsbrúnar veitti á sínum tíma höfundum aðstoð við að koma bókum sínum í opinn aðgang.

Að höfundi látnum helst höfundaréttur af ritverkum hans í 70 ár, óháð því hvort bækurnar seljist enn eður ei. Höfundurinn er ekki lengur til staðar og lögerfingjar hans hafa oft ekki áhuga. Ef ekkert er gert verða bækurnar „munaðarlausar” — þær eru til prentaðar á bókasöfnum, en enginn getur búið til fleiri eintök, hvað þá rafræn eintök. Í dag er hætta á að stór hluti íslenskra fræðirita frá síðari hluta 20. aldar detti inn í munaðarleysi. Margir eldri fræðirithöfundar vilja þó gjarnan leyfa opinn, rafrænan aðgang að bókum sínum eftir andlát sitt og jafnvel strax en skortir kunnáttu og aðstoð til að koma því í framkvæmd.

Starfsfólk bókasafnsins varð vart við þennan vanda þegar höfundar sem við þekktum báðu um aðstoð við að koma ritum sínum í sem víðasta dreifingu. Þau rit sem safnið var helst að aðstoða höfunda með eru fræðirit þar sem markmið með útgáfu þeirra var aldrei gróði, heldur að miðla áfram þekkingu. Einnig eru þetta yfirleitt eldri rit sem eru uppseld (e. out of print) og höfundar aftur komnir með útgáfurétt ritsins í sínar hendur. Oft voru þetta eldri höfundar, sem voru meðvitaðir um að þeir yrðu ekki alltaf til staðar til að selja og dreifa ritum sínum.

Hér að neðan má finna lista yfir þær bækur sem Bókasafn Dagsbrúnar hefur aðstoðað höfunda við að gefa fullan aðgang að í HathiTrust og/eða á Google Books.

 

Arnar Bjarnason, Export or die: the Icelandic fishing industry

Ágúst Einarsson, Greinasafn: úrval greina og erinda um stjórnmál, menningu …

Ágúst Einarsson, Greinasafn: síðara bindi: úrval greina og erinda um …

Ágúst Einarsson, Hagræn áhrif kvikmyndalistar

Ágúst Einarsson, Hagræn áhrif tónlistar

Dagný Kristjánsdóttir, Frelsi og öryggi

Eiríkur Bergmann Einarsson, ‎Jón Þór Sturluson, Hvað með evruna?

Eysteinn Sigurðsson, Bólu-Hjálmar

Friðrik Haukur Hallsson, Útlendur her á Íslandi

Friðþór Eydal, Vígdrekar og vopnagnýr

Gísli Gunnarsson, Monopoly trade and economic stagnation

Gísli Gunnarsson, Fiskurinn sem munkunum þótti bestur

Gísli Gunnarsson, Upp er boðið Ísaland

Gísli Gunnarsson, A study of causal relations in climate and history

Gísli Gunnarsson, Fertility and nuptiality in Iceland’s demographic history

Gísli Gunnarsson, The sex ratio, the infant mortality …

Gunnar Karlsson, Hvarstæða

Gunnar Karlsson, Að læra af sögu

Halldór Ármann Sigurðsson, Verbal syntax and case in Icelandic

Helga Kress, Guðmundur Kamban

Helga Kress, Máttugar meyjar

Helgi Skúli Kjartansson, Myndmál Passíusálmanna

Hildigunnur Ólafsdóttir, Alcoholics Anonymous in Iceland

Jón Gunnar Grjetarsson, Síbería: atvinnubótavinna á kreppuárunum

Jón Friðjónsson, Phonetics of modern Icelandic

Jón Sigurðsson, Bifrastarævintýrið og Jónasarskólinn: skerfur og saga

Jón Þ. Þór, Landhelgi Íslands, 1901-1952

Loftur Guttormsson, Bernska, ungdómur og uppeldi á einveldisöld

Matthías Viðar Sæmundsson, Ást og útlegð

Matthías Viðar Sæmundsson, Mynd nútímamannsins

Páll Bjarnason, Ástakveðskapur Bjarna Thorarensens og Jónasar Hallgrímssonar

Páll Valsson, Þögnin er eins og þaninn strengur

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Doing and becoming

Sigríður Valfells og James Cathey, Old Icelandic: an introductory course

Sumarliði R. Ísleifsson, Þórunn Sigurðardóttir, Samfélagsleg áhrif verkalýðshreyfingarinnar á 20. öld: …

Svanur Kristjánsson, Frá flokksræði til persónustjórnmála

Vésteinn Ólason, The traditional ballads of Iceland

Þorleifur Hauksson, Arna saga biskups

Þorleifur Hauksson, Endurteknar myndir í kveðskap Bjarna Thorarensens

Þórir Óskarsson, Undarleg tákn á tímans bárum

WordPress theme: Kippis 1.15