Bókasafn Dagsbrúnar er sérfræðisafn á sviði atvinnulífsrannsókna og verkalýðsmála. Safnið er einnig fræðibókasafn í hug-, hag- og félagsvísindum og handbókasafn fyrir ReykjavíkurAkademíuna. 

Safnið er opið almenningi sem getur skoðað bækur, tímarit og annað safnefni á staðnum en útlán eru einungis afgreidd sem innanhússlán til félaga ReykjavíkurAkademíunnar sem hafa skrifstofu á staðnum. Á safninu eru skrifborð sem gestir safnsins geta nýtt við notkun safnkosts og er þráðlaust Internet í boði. Einnig er hægt að fá efni ljósritað gegn vægu gjaldi. Þeir sem vinna að rannsóknum geta fengið að nýta vinnuaðstöðuna utan auglýsts opnunartíma.

Umsjónarmaður safnsins er Ingibjörg Hjartardóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur sem veitir upplýsingar um safnkost safnsins. 

Eigandi safnsins er Efling – stéttarfélag en ReykjavíkurAkademían er rekstraraðili þess.

 

Þórunnartún 2
Bókasafn Dagsbrúnar
Þórunnartúni 2, 1. hæð
105 Reykjavík

Opnunartími: 

Safnið er tímabundið lokað vegna viðgerða.

Netfang:

bokasafn [hja] akademia.is

 

WordPress theme: Kippis 1.15